Greetings from
Hákon International aka Hákonvíníent.
Jæja þá er maður búinn að vera hérna
í Swiss í tvær vikur og ég er ekki en orðinn spenntur yfir að vera
að flytja til útlanda svo ég hugsa að ég fari að gefa það upp á
bátinn.
Ég hélt að ég mundi sakna fullt af
hlutum en so far sakna ég bara eins hlutar:
ÉG sakna blótsyrða... hér eru ekki
notuð nein.. ég er farinn að læra að meta okkar orðljóta tungumál
.... svo ég byrja daginn alltaf á laginu sem hinn himneski faðir
kenndi okkur : RASSGAT, RASSGAT OG PÍKA!
Nei svona spauglaust... ekki stakt
blótsyrði hérna.. þvílíkar teprur allt um kring... skilja engan
veginn hinn sanna íslenska húmor og kynlífsbrandara eru ekki
ofarlega á afþreyingarlistanum. Markmið mitt þessa dagana er að
grafa upp erlend blótsyrði með góðan hrynjanda eins og “Shitturinn,
titturinn, mellan og hóran” .... Ég er samt búinn að finna ákaflega
skemmtilegt áhugamál og það er að hella asísku nemendurna fulla því
þeir kunna ekki að segja nei og eru komir á sneplana eftir einn
bjór... sérstaklega fyndið þegar kemur að brekkunni fyrir framan
skólann sem er svona 50 metra löng og 65% hallandi...
múahhaha
Þetta eru búið að vera magnaðar tvær
vikur fyrir utan þegar að ég gerðist flugdólgur á Standsted
flugvelli því þeir ætluðu að láta mig losa mig við allar
snyrtivörunar mína, ég hélt nú síður og endaði á að þurfa að borga
20þúsund. Helvítis terrorista ógn sem stafar af miðbæjarprizinum.
Daginn sem ég var í Englandi ætlaði ég að hitta 7fn og Elínu en þær
voru farnar frá London svo ég væflaðist bara einn og keypti föt
fyrir skólann.
Um kvöldið kom ég til Geneva og
skellti mér í skoðunarferð um næturlífið þar með nokkrum markvissum
stoppum eins og allir sannir heimsborgara myndu gera smakkaði
valdar guðaveigar og kom heim varning frá framandi
löndum


Síðan þá er það bara búið að vera
skólastúss og kynningaarpartý... besta partýið var samt án efa
Icebrakerpartýið þar sem ég fékk þann heiður að brjóta ísinn
bókstaflega með sleggju. Mjög viðeigandi.. eftir það geng ég
stoltur um með viðurnefnið “ICEMAN”
Síðustu helgi fór ég með Catherine
(amerísk) til Lausanne að versla... jeiii... Hækja og merkjafrík í
sama pakkanum. Svo næsta föstudag er stefnan tekin á Bern með
Cathleen (swiss/fillipísk) og Catherin í Froðupartý.. sem verður
örugglega blautt en magnað
Cathleen fannst þetta kjörið tækifæri
til að þukla á rössum innan um alla froðuna.. hehe
Jæja held að ég fari að henda mér í
ræktina, reyndar í annað skipti í dag, hef frekar mikinn frítíma
þessa stundina þar sem skólinn er ekki farinn almennilega af
stað.
Ég mundi gjarnan þiggja
peningasendingar (nánir ættingjar), íslenskt nammi, ullarpeysu
(amma), harðfisk, bréf og myndir (hakon_gurra@visir.is eða í pósti
á Avenue des
Alpes 15, 1820 Montreux,
Switzerland) og
síðast en ekki síst símtöl (0041764065868 gemsinn minn... eða
0041219664643 beint upp á herbergi)
Au
revoir
Ps. Mæli einnig
með að fylgjast með myspace síðunni minni... bíst við að nota hana
meira í vetur en þessa: